Fisksúpa



Efni:

Efni:
  • 1 kg  góður nýr fiskur, skorin í hæfilega stóra bita (td. Þorskhnakki 500 g og skötuselur 500 g)
  • 1 rauðlaukur, saxaður smátt
  • ½ gul paprika, skorin í bita
  • ½ rauð paprika, skorin í bita
  • 5 dL fisksoð
  • 2 dL rjómi
  • 200 g Philadelphia ostur með sweet chili
  • ¾ dL tómatpúrra
  • 20 - 30 g söxuð kóríanderblöð
  • 2 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð
  • ½ tsk chili-krydd
  • ½ tsk engifer
  • ¼ tsk cumin
  • 1 msk sykur (má sleppa)
  • ½ – 1 msk kartöflumjöl (má sleppa)
  • sjávarsalt
Aðferð: Laukur, chili og paprika steikt og mýkt í stórum potti. Þá er rjómaostinum, fiskikraftinum, rjómanum, tómatpúrrunni, kryddunum og sykrinum bætt út í. Því næst er kóríander bætt út í súpuna og suðan látin koma upp. Hvítlauknum er svo bætt beint út í súpuna. Hrært vel og súpan látin malla í ca. 5 mínútur.

Til þess að þykkja súpuna er hægt að hræra karföflumjölið út í örlitlu vatni og bæta svo út í súpuna.

Að lokum er fisknum bætt út í súpuna og hún látin malla í nokkrar mínútur í viðbót þar til fiskurinn er soðin í gegn. Súpan er smökkuð til með salti og pipar og jafnvel bætt við meira af kryddunum af hráefnalistanum.

Súpan er borin fram með góðu brauði.
© Heimild: Dröfn Vilhjálmsdóttir / Eldhússögur