Töflur má mynda á einfaldan og fljótvirkan hátt í LO Writer.



Auðveldast er að gera eftirfarandi:
  1. Smella á felligluggamerkið í hægri hluta töfluhnappsins í staðalstikunni.



Ath. Ctrl+F12 virðist ekki svara á tölvum MR en gengur í Windows og á Mac OS X ⌘ F12
  1. Þá opnast valgluggi líkur þeim sem sést hér til hægri. Renndu bendlinum niður á töfluna og veldu þann fjölda dálka og lína sem á að birtast í töflunni.
Töflur má móta á ýmsan hátt og auðvelt er að fá þar til gerðan samtalsglugga með:
  1. Hægrismella í töfluna
  2. Velja Table …
Hér er að finna margs konar tæki til að móta töfluna. Bendlinum hefur verið smellt á gerði [Borders] í töflunni og umhverfis hana en þau má stilla á margs konar vegu.
Einnig er hægt að kalla fram sérstaka verkfærastiku fyrir töflur:
  1. View
  2. Toolbars ► Haka við Table
Þessi stika getur ýmist verið fljótandi eða naustuð

Ábending um hlutverk hnappanna birtist þegar bendlinum er rennt yfir þá.


Sjá framhald um mótun töflu á næstu síðu.