Spergilkál, sprotakál eða brokkólí [Brassica oleracea var. italica]



[En: broccoli; Dk: Broccoli; De: Brokkoli]



Spergilkál er ræktunarafbrigði garðakáls. Það myndar stóra klasa grænna blómknúppa sem eru það eina sem er étið af plöntunni, líkt og hjá blómkáli, sem er náskylt afbrigði. Spergilkál var fyrst og fremst ræktað á Ítalíu, þar sem það var þekkt að minnsta kosti frá tímum Rómverja, fram á 19. öld þegar ræktun þess breiddist hægt út til annarra landa. Nafnið er dregið af því að bragðið af stilkunum þykir minna á spergil. Það þolir vel kulda.
Brokkólí
Kálhausinn er skorinn niður í litla vendi. Ágætt er að Setja þá í léttsaltað sjóðandi vatn og láta þá vera í því baði uþb. 2 mínútur. Að því loknu eru vendirnir kældir í köldu vatni og þurrkaðir td. í salatvindu.
Þurrum Brokkólí vöndum er komið fyrir á bakka og ristaðir hæfilega í ofni við uþb. 200°C.


Sjá efnainnihald (EN)