Á þversprungum milli hryggjastykkja á Atlantshafs-hryggnum eru sniðgengi (oft kölluð þvergengi) og á þeim verða oft stórir skjálftar. Slíkir skjálftar finnast úti fyrir Norðurlandi og á Suðurlandsundirlendinu. Um er að ræða hægra sniðgengi á Norðurlandi en vinstra sniðgengi á Suðurlandi. Þegar hryggur hliðrast til vinstri eins og úti fyrir Norðurlandi myndast hægra sniðgengi á þversprungunum.
Dæmigert þverbrotabelti með vinstra og hægra sniðgengi ◊
Skjálftalausnir við Ísland ◊
Kort af Íslandi með tíðustu og stærstu skjálftum ◊.
Sjá um túlkun á misgengjum og bókahillusniðgengi.
Sjá brotlausir skjálfta.
Sjá INDEX /=> |J| → jarðskjálftar.