ppm: eining sem oft er notuð þegar verið er að gefa upp uppleyst efni í lofti, vatni eða líkamsvessum. Einn ppm [parts per million] jafngildir einum hluta í milljón, milljónarhluta.
Þegar um vökva er að ræða er gjarna miðað við lítra (L). Einingin mg/L jafngildir 1 ppm.
Aðrar skyldar einingar eru °d (°dH, hörkugráður grunnvatns), sem er 1/10 hluti ppm, og mMÓl/L.
Þegar um lofttegundir er að ræða er venja að miða við mól/m3.
Eitt mól lofttegundar samkvæmt ástandsjöfnu lofttegunda
P · V · = n · R · T
er 22,4 L við 0°C (293,3 K) og einnar loftþyngdar þrýsting (1 atm). Samkvæmt sömu jöfnu verður rúmmál sömu lofttegundar 24,04 L við 20°C.
Þar sem x stendur fyrir hluta í ppm og M fyrir mólmassa efnis í grömmum.
250 ppm af brennisteinsdíoxíði (SO2; mólmassi = 64 g/mól) verður því:
250 · 64 · 41,7 · 10−3 = 667 mg/m3
Þetta má gera á einfaldari hátt með því að setja inn í eftirfarandi jöfnu: