Gerði [Borders] í töflum LOw

Sjálfgefin geði í töflum LOw sjást sem daufar línur en koma hins vegar ekki fram í prentun,


Útlit gerðanna er stillt í sérstökum samtalsglugga þar sem þau eru gerð sýnileg í útprentun og sverleiki línanna og litur ákveðinn.



Veldu þann hluta töflunnar þar sem á að breyta gerðunum.
  1. Hægrismelltu í töfluna
  2. Veldu Table …
  1. Veldu Border flipann
Hér er að finna margs konar tæki til að móta töfluna. Bendlinum hefur verið smellt á gerði [Borders] í töflunni og umhverfis hana en þau má stilla á margs konar vegu.
Efst tv. eru skjálfgefnir kostir
Hér er fyrsti kosturinn valinn: Engin gerði [Set No Borders]
Hér er annar kosturinn valinn: Aðeins kallað fram gerði umhverfis töfluna [Set Outer Borders Only]

Ef ætlun er að breyta gerð línu þurfa örvar að benda á hana (eins og myndirnar sýna ).
Hér er þriðji kosturinn valinn: Gerði umhverfis töfluna kallað fram og láréttu línurnar [Set Outer Borders and Horizontal Lines]
Hér er fjórði kosturinn valinn: Gerði umhverfis töfluna kallað fram og öll inri gerði [Set Outer Borders and All Innerl Lines]
Hér er fimmti kosturinn valinn: Gerði umhverfis töfluna kallað fram og sverleiki lína stilltur án þess að hreyfa við innri línum [Set Outer Border Without Changing Inner Lines]
Einnig er hægt að kalla fram sérstaka verkfærastiku fyrir töflur:
  1. View
  2. Toolbars ► Haka við Table
Þessi stika getur ýmist verið fljótandi eða naustuð

Ábending um hlutverk hnappanna birtist þegar bendlinum er rennt yfir þá.