Titilsíða í LOwriter

Hér að neðan verður sýnt hvernig [Footer] og þar með blaðsíðutal verður tekið af titilsíðu og fyrsta textasíða á eftir titilsíðu fær blaðsíðutalið 1.



Blaðsíðutal og Footer er tekið af fyrstu síðu með:
  1. Format
  2. Title Page
  3. Gert er ráð fyrir að fyrsta síða skjalsins verði titilsíða og þess vegna er hakað við [Document Start] C
  4. Fjöldi titilsíða [Number og title Pages] er stilltur á 1 B
  5. Blaðsíðutal er hafið með 1 á fyrstu síðu á eftir titilsíðunni D


Ef ætlunin að birta eitthvað á baksíðu titilsíðunnar td. útgáfuár og réttindi höfundar má setja fjölda titilsíða á 2 B

Í neðri hluta samtalsmyndarinnar er blaðsíðutalið endurstillt sem blaðsíða 1 á eftir titilsíðunum.

Ef blaðsíða # 1 er ætluð fyrir formála eða efnisyfirlit má td. láta blaðsíðutalið birtast með rómversku letri. Það er stillt á:



  1. Format
  2. → Page …
  3. Veljið Page flipann í samtalsglugganum
  4. Veljið Layout Settings
  5. Format


Sjá einnig síðu um blaðsíðutal hafið á ný.


Sjá ennfremur hvernig hvernig blaðsíðutali er sleppt á fyrstu textasíðu.