Túrmerik, gullinrót, kúrkúma


[En: turmeric; Dk: gurkemeje]



Túrmerik er planta af engifersætt sem vex á Indlandi og víðar. Kúrkúma er austurlenskt krydd með sterkum gulum lit. Kúrkúma eða gurkemeje er í raun jarðstöngul plöntu [Curcumea longa]. Hún er beisk á bragðið; líkist engiferplöntu en er með lengri blöðum; rótarstilkar þeirra eru notaðir og unnið er úr þeim litarduft sem er notað í karrí og fleiri kryddblöndur, til dæmis í paprikuduft til að gefa lit. Kryddið, sem hefur verið ræktað í a.m.k tvö þúsund ár í Asíu, er þurrkað og malað og notað í karríblöndur og marga indverska og norður-afríska rétti og gefur þeim sterkan lit. Hins vegar þarf að gæta að það bletti ekki fatnað eða borðplötur og hluti úr tré.

Stundum er túrmerik, sem er eitthvert ódýrasta krydd í heimi, notað í staðinn fyrir saffran, sem er hið dýrasta, enda er ilmurinn svipaður, en bragðið er allt annað og í mörgum tilvikum er alls ekki hægt að nota túrmerik, einkum þar sem bragðið á að vera milt og fíngert. Túrmerik er nær alltaf selt sem duft, enda erfitt að mala það heima. Það geymist ekki sérlega vel malað, þe. ekki hvað bragðgæði varðar, en litunareiginleikunum heldur það mjög vel; hins vegar er lítil hætta á að það sé svikið þar sem það er svo ódýrt. Kryddið er ekki aðeins notað í mat, heldur einnig til að lita vefnað, þótt tilbúin litarefni hafi að mestu komið í stað þess á síðari árum. Túrmerik og þar með einnig karrí er mjög viðkvæmt fyrir sólarljósi og því ætti að geyma það á dimmum stað.
Rótarstöngull túrmerik plöntunnar