Hversu lengi á að sjóða eggin.



Það má segja að með einfaldari eldamennsku sé að sjóða egg. En ekki er allt sem sýnist eigi útkoman að verða góð.


Suðutími á eggjum fer eftir stærð eggjana.
Hér er miðað við meðalstór egg þe. 60-65 g.

Setjið vatn í pott og látið suðu koma upp.
Setjið eggin varlega ofan í pottinn, gott er að nota matskeið við verkið.
Lækkið hitann.


Eggin eru soðin mislengi eftir því hvernig fólk vill hafa eggin sín, þ.e.a.s. linsoðin eða harðsoðin. Einnig má setja eggin út í kalt vatn, kveikja undir pottinum og byrja að taka tímann þegar suða kemur upp. Við þessa aðferð þurfa eggin mögulega örlítið styttri suðutíma.


Kælið eggin undir kaldri vatnsbunu í smá stund.


Góð ráð fyrir eggin: