Gulrót, [Daucus carota]



Gulrót er rótargrænmeti af sveipjurtaætt. Plöntuhlutinn sem mest er nýttur er stólparótin. Gulrætur eru tvíærar þar sem plantan safnar næringarforða í rótina fyrra árið en blómgast seinna árið. Blómstilkurinn verður um metri á hæð og ber uppi blómsveip með hvítum blómum. Gulrætur finnast í hvítum, fjólubláum, rauðum, gulum og appelsínugulum afbrigðum en við þekkjum appelsínugul afbrigðið best,

Villtar gulrætur vaxa í mörgum afbrigðum víða á tempruðum svæðum en þær eru best þekktar í Asíu og við Miðjarðarhafið. Talið er að menn hafi nýtt gulrætur sem krydd og til lækninga í mörg þúsund ár og löngu áður en farið var að rækta þær sem rótargrænmeti. Villtar gulrætur eru forfeður þeirra gulróta sem nú eru ræktaðar. Upphaflega voru gulrætur grannar, greinóttar og fölar. Enda höfðu menn í upphafi ekki áhuga á rót plöntunnar, heldur fræjunum.

Að baki gulrótanna eins og við þekkjum þær í dag er margra alda vinna að kynbótum. Talið er að ræktun með áherslu á rót plöntunnar, hafi hafist í Afganistan, Íran og Írak fyrir 1000 árum. Þá voru þær gular eða fjólubláar á litinn. Þegar þær bárust til Evrópu á 14. öld voru afbrigðin gul, hvít og fjólublá. Appelsínugula afbrigðið varð þekkt í Evrópu á 15. öld en allt bendir til að þær hafi komið fram á sjónarvöllinn á 6. öld.

Í gulrótum er mikið af litarefniu beta-karóten. Líkaminn getur notað karoten til að búa til A-vítamín. Auk þess er í gulrótum B- og C-vítamín ásamt mikilvægum steinefnum eins og kalíum, kalki, járni og fosfór. Líkaminn á auðveldara með að taka upp beta-karoten úr gulrótum ef þær eru steiktar eða bakaðar í olíu. Í matreiðslu eru gulrætur notaðar á fjölbreyttan hátt, í salöt, grænmetisrétti, súpur, kökur og búðinga. Gulrætur innihalda sáralitla sterkju. Mjög mikil neysla á gulrótum veldur því að húðin verður appelsínugul.



© Heimild: Wiki.

Gulrætur
franskur skurður