Gráfíkjuterta

Fríðu Lofts
500 g hakkaðar gráfíkjur
500 g sykur
290 g hafragrjón
290 g hveiti
180 g brætt smjör
5 egg
3 tsk natron

Öllu blandað saman og látið standa við stofuhita til næsta dags.
Passar í fjóra botna með form ca. 24 cm í Ø.
Bakstur: 200°C í ca. 20 + mín.
 
Lagt á milli botnanna: 500 g gróft hakkaðar gráfíkjur soðnar með sykri, vanilludropum og vatni. „Grauturinn“ má vera dálítið blautur.