Bananaterta



Efni í tertubotnana:
  • 4 egg
  • 200 g sykur
  • 100 g hveiti
  • 1 tsk matarsódi
Aðferð;
Eggjunum og sykrinum hrært saman og hveitinu bætt í.
3 – 4 botnar

Bakað við 170°C í forhituðum ofni í 10 - 15 mínútur.
Efni í kremið;  
  • 175 g smjör
  • 150 g flórsykur
  • 3 bananar
 
Aðferð:
Banarnir stappaðir og allt hrært saman og lagt á milli botnanna þegar þeir hafa verið bakaðir.

100 g dökkt suðusúkkulaði Aðferð:
Súkkulaðið brætt í vatnsbaði og tertan þakin með bráðinu.

30 afhýddar möndlur
Súkkulaðiþakin tertan skreytt með möndlunum.