Afstæður aldur: í þverskurði berglaga.
Á fyrri hluta nítjándu aldar kom út bókin Lögmál jarðfræðinnar eftir breska jarðfræðinginn Charles Lyell. Í bókinni eru útskýrð mörg þau lögmál sem James Hutton hafði áður sett fram og lutu að aldri berglaga. Þar má nefna lögmálið um að innskot í jarðlögum sé ávallt yngra en það berg sem innskotið treður sér inn í. Þessi alhæfing er kölluð lögmálið um samhengið í víxlskurði berglaga og má ekki aðeins heimfæra á berg heldur einnig á jarðmyndanir eins og höggun, misgengi og mislægi. ◊