Við klofnun geislavirkra efna í jarðmöttlinum myndast mikill varmi. Vegna þess hve berg er slæmur varmaleiðari mynda iðustraumar eins konar uppstreymisstróka sem bera heitt og um leið eðlisléttara efni uppávið í möttlinum og flýta þannig fyrir varmaútstreyminu svo jafnvægi náist. Þessir möttulstrókar haga sér líkt og hlýtt og eðlislétt loft sem stígur upp og lyftir sér upp í gegnum kalt loft og myndar þannig háreista skýjabólstra. ◊
Talið er að iðustraumarnir myndi 20 - 30 staðbundna möttulstróka þar sem efnið stígur upp og dreifist síðan til allra átta undir jarðskorpunni. ◊ Einn þessara möttulstróka er undir Íslandi. ◊
◊
Yfir möttulstrókunum eru svokallaðir heitir reitir og þar er eldvirkni óvenju mikil. ◊. Heitir reitir standa hátt því undir þeim er jarðmöttullinn heitari og þess vegna eðlisléttari en umhverfið. Er þetta talin vera skýringin á því að Ísland skuli yfirleitt vera til. Tiltölulega þungur berglagastafli landsins er borinn uppi af möttulstróknum og þess vegna í flotjafnvægi við sjávarbotninn umhverfis.