Jöklar eru algengir í köldu úrkomusömu loftslagi þar sem meiri snjór fellur en svo að hann nái að leysa yfir sumarið. Við slíkar aðstæður verða til snjófyrningar en lægstu mörk þeirra kallast snælína eða hjarnmörk. Hæð snælínu er háð veðurfari og ræðst einkum af samspili úrkomu og lofthita. Hæð hennar er lægst á heimskautunum þar sem hún er við sjávarmál en hæst við hvarfbaugana. Í hlíðum Kilimanjaró í Austur-Afríku liggur snælínan í um 5500 m h.y.s. Hér á landi mun snælínan vera lægst, um 600 m, á Hornströndum. Sunnan Vatnajökuls er snælínan í um 1000 - 1100 m h.y.s., en 1300 - 1400 m við jökulinn norðanverðan. Í Ódáðahrauni liggur hún enn hærra því þar er Herðubreið sem er 1682 m há og jökullaus.