Eldborgir myndast við eitt, fremur stutt, flæðigos þegar þunnfljótandi gasríkt hraunbráð flæðir upp um eldrás sem verður pípulaga er líður á gosið. Hraunbráðið kraumar í gígskálinni og sýður upp úr henni með nokkru millibili. Við það flæðir hraunbráðið yfir barmana og hlaðast þannig upp mjög reglulegir gígveggir úr nokkurra cm þykkum hraunskánum — kleprum. Gígveggirnir eru brattir ofan til (40°- 60°) og mynda efst þunna egg og eru þeir aðaleinkenni eldborganna. Þekktasta dæmi um eldborg er Eldborg í Hnappadal en hún mun líklega hafa gosið löngu fyrir landnám. Eldborgir eru mjög sjaldgæfar utan Íslands.