Landmótun vindsins

Vindurinn er mikilvirkur þar sem hann nær sér best á strik en það er einkum á þurru gróðurvana landi. Ekki er eingöngu um vindrof að ræða heldur sverfur vindurinn allt sem á vegi hans verður með mylsnunni sem hann feykir með sér. Landmótun vindsins er víða áberandi og ósjálfrátt koma þá eyðimerkur upp í hugann en þær eru oftast þar sem ársúrkoma er undir 250 mm eða uppgufun er meiri en úrkoman.