Steingervingar

Víða í setlögum hafa varðveist steingerðar leifar dýra og plantna og kallast þær steingervingar. Aðeins lítill hluti þeirra lífvera sem lifað hafa á jörðinni varðveitast sem steingervingar. Algengast er að leifar sjávardýra, og þá einkum harðir líkamshlutar þeirra, verði að steingervingum þegar dýrið deyr og leifarnar kaffærast í seti áður en þær ná að rotna eða eyðast. Harðir líkamshlutar eins og bein eða skeljar varðveitast best en oft falla steinefni út og mynda steindir þannig að mynstur frumuveggja varðveitist. Þannig má t.d. sjá árhringi í steinrunnum trjám.


Enskur verkfræðingur, William Smith að nafni, sem vann við kolanám og gerð skipaskurða í heimalandi sínu í lok 18. aldar, tók eftir því að setlögin greindust í syrpur eða lotur sem hver hafði sín einkenni. Hann þekkti ekkert til þróunarkenningar Darwins enda birtist hún ekki fyrr en nokkrum áratugum seinna. Eigi að síður tók Smith eftir því að í hverri setlagasyrpu fundust vissir steingervingar og enn aðrir í næstu syrpu og þannig koll af kolli (framvinda steingervinga). Hann mældi og kortlagði setlög víðs vegar í Suður-Englandi sem mörg hver höfðu hnikast til og jafnvel umturnast á 270 milljón ára myndunartíma. Þótt jarðlagasniðin væru sundurlaus og slitrótt tókst honum með aðstoð einkennissteingervinga að draga upp heildarsnið fyrir öll jarðlögin. Með einkennissteingervingum er átt við þá steingervinga dýrategunda sem höfðu mikla útbreiðslu en lifðu skamman tíma jarðsögulega séð og er því aðeins að finna í setlagasyrpu eða setlagalotu frá þeim afmarkaða tíma. Segja má að á síðari hluta 19. aldar hafi afstæða jarðsögutaflan verið komin í núverandi horf. ◊. ◊.


Þegar setlagasnið (eða setlagalotur) mismunandi svæða eru borin saman kemur oft í ljós að sum þeirra eru heilleg og órofin en önnur, sem tekin eru af setlögum skammt frá, eru slitrótt og auðsjáanlega með eyðum. Þau geta til dæmis verið eins og sýnt er á mynd:


Þetta kallast mislægi og þó þau eigi sér ýmsar orsakir er þeim það sameiginlegt að þau eru vísbending um eyður í jarðsögu svæðisins. Oft kemur fram hallamunur eldri og yngri jarðlaga þar sem um mislægi er að ræða samanber mynd:


Sjá ennfremur síðu um varðveisluhætti steingerðra lífvera eða skriðfara.